Fara í efni

Leikja- og ævintýranámskeið á Flúðum

Leikja- og ævintýranámskeið á Flúðum
Leikja og ævintýranámskeiðið er frá kl. 9:00-15:00 og er fyrir börn sem klára 1.-4. bekk núna í vor og þau börn sem eru í skólahópi á Leikskólanum Undralandi.

Fjölbreytt dagskrá með leikjum, útivist, frisbí, hjólafærni og boltaleikjum ásamt sundlaugarferðum og heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir.

Börnin koma með hádegisnesti en fá hressingu á vegum námskeiðsins eftir hádegi. Í lok hvers námskeiðs er pylsupartý. Bækistöð námskeiðsins og mæting er í heimilisfræðistofunni austan við íþróttahúsið.

Leiðbeinendur: Birta Marinósdóttir, Orri Ellertsson, Páll Unnsteinsson og Erla Kolbrúnardóttir en þau hafa öll reynslu af því að vinna með börnum í skólunum okkar og hjá íþróttafélögum.

Námskeiðin verða þrjú og á eftirfarandi dögum:

  • 8. - 12. júní  (5 dagar)  Verð: 11.000,-
  • 15.-19. júní (4 dagar)   Verð:  9.000,-
  • 22.-26. júní (5 dagar) Verð: 11.000,-

Athygli er vakin á því að skólahópur leikskólans greiðir ekki námskeiðsgjald.

Takmarkað er hversu margir geta verið á hverju námskeiði en börn úr Hrunamannahreppi hafa forgang í námskeiðin.
Hver vika er pöntuð og greidd sérstaklega. Greiðsla og skráning fer fram í Sportabler, undir Hrunamannahreppur:

Sportabler verður tilbúinn á næstu dögum til skráningar.