Leikskólakennarar óskast í leikskólann Undraland á Flúðum
Ertu metnaðarfull(ur) og brennur fyrir leikskólastarfi? Viltu vera hluti af skóla sem leggur áherslu á umhverfi, útinám og umhyggju?
Við í Undralandi leggjum mikla áherslu á virðingu fyrir börnum og að koma til móts við ólíkar þarfir þeirra. Hver einstaklingur skiptir máli, við vinnum með jákvæða nálgun þar sem umhyggja, stuðningur, hlýja og styrkleikar hvers barns eru í forgrunni. Þetta skólaár er unnið að innleiðingu á agastefnunni „jákvæðum aga“.
Í Undralandi eru rúmlega 50 börn á þremur deildum, yngsta deildin er nýflutt í sér húsnæði. Undraland er ört stækkandi skóli í einstöku umhverfi.
Við bjóðum:
- Lifandi og skapandi vinnuumhverfi
- Teymisvinnu og faglegt nám
- Áherslu á útinám og umhverfismennt
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun skólastarfsins
- Stuðning í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla í starfi með leikskólabörnum
- Virðing og áhugi á að vinna með börnum
- Hreint sakavottorð
Sæktu um og vertu hluti af framsæknu leikskólastarfi í friðsælu umhverfi.
Ef ekki fást leikskólakennarar verða leiðbeinendur ráðnir timabundið.
Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Jónsdóttir leikskólastjóri S: 4806620 /8983077 og jona@undraland.is
Umsóknir með ferilskrá sendist á jona@undraland.is Umsóknarfrestur til 10. febrúar 2026.
Leikskólakennarar óskast í leikskólann Undraland á Flúðum