Ljósmyndasamkeppni - Mannlíf og náttúra í Hrunamannahreppi
Í tilefni af 1150 ára afmælishátíð Hrunamannahrepps hefur verið ákveðið að efna til ljósmyndasamkeppni. Allir eru hvattir til að vera vakandi fyrir hinu fallega, sérkennilega og skemmtilega í umhverfi okkar og ekki síst því sem gerir sveitarfélagið einstakt.
Þema keppninnar er „Mannlíf og náttúra í Hrunamannahreppi“ en undir þann stóra málaflokk heyrir til dæmis mannlíf, dýralíf, landslag, árstíðir, útivist eða einfaldega skemmtileg og falleg augnablik úr hinu daglega lífi. Eina krafan er að myndin sé tekin í Hrunamannahreppi.
Hver þátttakandi má senda inn allt að 10 myndir og þurfa myndirnar að vera í góðum gæðum. Endilega sendið myndirnar á netfangið: hruni@fludir.is
Gott er að setja „Ljósmyndasamkeppni Hrunamannahrepps“ í efnislínu og taka fram nafn og símanúmer myndasmiðsins í tölvupóstinum.
Lokadagur til að skila myndum í keppnina er 10. janúar 2027.
Athugið að með þátttöku í samkeppninni veitir þátttakandi Hrunamannahreppi heimild til að nota innsendar myndir í kynningarefni og á miðlum sveitarfélagsins, reynt verður eftir fremsta megi að geta ljósmyndara.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndirnar sem sérstök dómnefnd mun velja.
Það verður gaman að sjá hvernig íbúar og gestir sjá Hrunamannahrepp í gegnum linsuna.
Bestu myndirnar verða svo til sýnis á góðum stað í upphafi árs 2027.