Miklar breytinga á akstri Strætós eru framundan.
Á fundi sveitarstjórnar þann 3. september var lögð fram fundargerð samráðsfundar sem haldinn var vegna fyrirhugaðra breytinga á leiðakerfi almenningssamgangna í Uppsveitum Árnessýslu. Einnig voru þar lagðar fram tölur um farþegafjölda. Samkvæmt þeirri útfærslu sem kynnt var er gert ráð fyrir að leiðir 72 og 73 aki tvær ferðir á virkum dögum samkvæmt skóladagatali Fjölbrautaskóla Suðurlands, en að allur akstur um helgar og á sumrin falli niður.
Vegna þessara breytinga bókaði sveitarstjórn með eftirfarandi hætti:
Sveitarstjórn lýsir yfir vonbrigðum með þá ákvörðun Vegagerðarinnar að hætta rekstri almenningssamgangna í uppsveitum nema þeim sem tengjast skólaakstri í Fsu. Sveitarstjórn gerir sér glögga grein fyrir því að ábyrgðin á þessari ákvörðun er ekki Vegagerðarinnar heldur fjármálaráðuneytisins sem gerir það ríka aðhaldskröfu á almenningssamgöngur að nú reynist ógjörningur að halda þeim rekstri áfram. Nær hefði verið, hér í Uppsveitum, þar sem uppbygging er mikil, að auka tíðni ferða og markaðssetja gæðin sem fólgin eru í almenningsamgöngum frekar en að draga úr framboðinu og gera því hinum almenna notenda svo til ókleyft að nýta almenningsamgöngur, sem væri þó íbúum og samfélaginu öllu til hagsbóta.
Sveitarstjórn skorar á innviðaráðuneytið að endurskoða fyrirhugaðar breytingar og tryggja almenningssamgöngur sem standa undir nafni í Uppsveitum Árnessýslu, allt árið um kring.