Fara í efni

Námskeið og afþreying fyrir börn og ungmenni í sumar

Í sumar verða fjölbreytt námskeið í boði fyrir börn og ungmenni bæði hér á Flúðum og svo í næsta nágrenni.  Eru foreldrar hvattir til að fylgjast með tilkynningum og skrá börn sín í þau námskeið sem í boði eru.  Eitthvað getur bæst við og þá verður það auglýst rækilega á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins. 
Námskeiðin eru auglýst á Abler: https://www.abler.io/shop/heilsueflandiuppsveitir

 

 

Leikja- og ævintýranámskeið á Flúðum
Leikja og ævintýranámskeiðið er frá kl. 9:00-15:00 og er fyrir börn sem kláruðu nú í vor 1.-4. bekk og þau börn sem eru í skólahópi á Leikskólanum Undralandi.

Fjölbreytt dagskrá með leikjum, útivist, frisbí, hjólafærni og boltaleikjum ásamt sundlaugarferðum og heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir.

Börnin koma með hádegisnesti en fá hressingu á vegum námskeiðsins eftir hádegi. Í lok hvers námskeiðs er pylsupartý.  Bækistöð námskeiðsins og mæting er í heimilisfræðistofunni austan við íþróttahúsið. 

Leiðbeinendur: Birta Marinósdóttir, Orri Ellertsson, Páll Unnsteinsson og Vignir  Öxndal Ingibjörnsson  en þau hafa öll reynslu af því að vinna með börnum í skólunum okkar og hjá íþróttafélögum.

Námskeiðin verða þrjú og á eftirfarandi dögum:

  • 10.-13. júní  (4 dagar)     Verð:    8.000,-
  • 18.-20. júní  (3 dagar)     Verð:   6.000,-
  • 23.-27. júní  (5 dagar)     Verð: 10.000,-

Athygli er vakin á því að skólahópur leikskólans greiðir ekki námskeiðsgjald. 
Hver vika er pöntuð og greidd sérstaklega.  Greiðsla og skráning fer fram í Sportabler, undir Hrunamannahreppur:
Skráning á námskeið fer fram hér

 

 

 


Golfkennsla á laugardögum á golfvellinum á Efra Seli
Líkt og undanfarin ár mun GF bjóða upp á ókeypis golfkennslu fyrir 6 til 16 ára börn og unglinga í sumar. Um er að ræða 5 skipti yfir sumarið, allt á laugardögum. Kennari er Ástráður Sigurðsson, PGA.  Allir á nærsvæði Selsvallar (Flúðir, Reykholt og nærsveitir) eru velkomnir. Ungmennin þurfa helst að hafa a.m.k. eina golfkylfu meðferðis. Sé það ekki mögulegt verður því þó bjargað. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram, bara mæta með góða skapið.

Dagsetningar kennslu í sumar eru (laugardagar):   31. maí - 7. júní - 12. júlí - 19. júlí - 9. ágúst.
Kennt verður milli kl. 9:00 og 11:00 fyrir byrjendur og milli kl. 11:00 og 13:00 fyrir lengra komna.

Golfnámskeið fyrir börn og unglinga 
Golfklúbburinn Flúðum býður félagsmönnum að senda ættingja sína (börn,barnabörn, etc.) á golfnámskeið án endurgjalds í sumar. Námskeiðið er ætlað 7-14 ára unglingum og stendur yfir frá 23. til 26. júní nk. Námskeiðið hefst hvern dag kl. 9:00 og stendur yfir til kl.12:00.

Námskeiðið hefst með því að Ástráður Sigurðsson golfkennari kennir fyrsta daginn, en seinni þrjá dagana munu félagar úr GF leiða kennsluna og spila með unglingunum. Hægt er að taka með sér nesti og snæða í golfskálanum í lok hvers tíma, en í hádeginu á fimmtudeginum verður boðið upp á pizzu og gos fyrir alla.

Einkatímar: Einnig býður Ástráður upp á einkakennslu (fyrir 1-2 í senn, 30 eða 60 mínútur) fyrir þá sem vilja. Yfirleitt er um að ræða kennslu eftir kl. 13:00, þegar námskeiðum dagsins er lokið.

 

 


Körfuboltabúðir á Flúðum
Körfuboltabúðir Hrunamanna verða haldnar á Flúðum dagana 3.-6. júlí 2025. Eru körfuboltabúðirnar, sem eru aldursskiptar, ætlaðar börnum sem eru fædd 2007-2019.  ​Þjálfarar úr fremstu línu líkt og síðustu ár, skotkeppnin á sínum stað og fleira skemmtilegt sem auglýst verður síðar.

Það hefur alltaf orðið uppselt í búðirnar vikum fyrir upphaf og því mælum við með að tryggja sér pláss fyrr en síðar.

Vinsamlegast kynnið ykkur tímasetningar einstakra árganga á Sportabler og munið að skrá ykkur tímanlega því undanfarin ár hafa færri komist að en vildu.

Skráning fer fram hér: Körfuboltabúðir á Flúðum

 

 

 

 

Sundnámskeið fyrir börn. 
Hið sívinsæla Guggusund, vornámskeið í sundi  verður í Sundlauginni í Reykholti 10.-20. júní 2025. 

Yngri hópur börn fædd 2021-2022 ( verða í fyrri hópnum kl 16:00-16:45)
Eldri hópur börn fædd 2019-2020 ( verða í seinni hópnum kl 16:45 - 17:30)
(hópaskiftingin er með fyrirvara um fjölda og aldur barnanna - börn í 1.bekk líka velkomin!)
Ef það verður mjög margt og þörf á þriðja hópnum þá væri best að hafa hann kl 15:15-16:00.

- Kennt er í 45 mínútur í senn og kemur eitt foreldri með barninu ofaní laugina.

Námskeiðsgjaldið er 24.500kr (hægt að nýta frístundastyrk með því að velja það um leið og skráð er)

Ef systkini kemur líka þá greiðir annað barnið 19.600kr. (20% afsláttur)

Skráning í Guggusund

 

 

 

Dansnámskeið á föstudögum í Reykholti. 
Ungmennafélag Biskupstungna stendur  fyrir skemmtilegu dansnámskeiði í Íþróttahúsinu í Reykholti,
Kennt verður föstudagana 20. og 27. júní og 4. og 11. júlí, klukkan 17:00.

Nánari upplýsingar á Sportabler.

 

 

 

Fótboltaæfingar hjá ÍBU
Skráning á sumaræfingar í fótboltanum hjá ÍBU.

Fótboltaæfingar ÍBU í sumar!
ÍBU verður með fótboltaæfingar í Árnesi, Flúðum, Laugarvatni og Reykholti í sumar.

Fyrsta æfing sumarsins verður á Flúðum miðvikudaginn 4. júní.

ÍBU mun í fyrsta skipti vera með stelpu æfingar í sumar og við hvetjum allar stelpur til þess að prófa að koma á æfingar.
Þjálfarar í sumar verða Tindur Örvar sem er búinn að þjálfa á Laugarvatni og Reykholti í vetur og Lilja Unnur Ágústsdóttir ásamt Ásdisi Erlu Helgadóttur sem ætlar að þjálfa æfingar hjá stelpunum.

Öllum stelpum og strákum sem hafa ekki verið að æfa í vetur og er velkomið að koma og prufa fyrstu vikuna svo er skráning á Sportabler.

 

Þegar barn er skráð þá er það velkomið á allar æfingar, sama hvar þær eru. Því er hægt, með smá skutli, að ná allt að 4 æfingum í viku!

 

Hlökkum til að sjá ykkur á æfingu⚽️

 

 

Reiðnámskeið
Hestamannafélagið Jökull stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum og æfingum fyrir börn og ungemenni sem kynnt verða á samfélagsmiðlum félagsins.