Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hefur tekið gildi
Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hefur tekið gildi eftir samþykki HMS, stjórnar BÁ og allra átta sveitarfélaga á starfssvæðinu.
Brunavarnaáætlanir styrkja viðbúnað slökkviliða með því að tryggja að mönnun, búnaður, þjálfun og skipulag séu í samræmi við þær hættur sem fyrir hendi eru.
Nú eru 94% landsmanna með virka brunavarnaáætlun og hefur hlutfallið aldrei verið hærra.
Þriðjudaginn 5. maí var ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu (BÁ) samþykkt. Áætlunin er samþykkt af HMS, stjórn BÁ og sveitarfélögum á starfssvæði slökkviliðsins sem eru 8 talsins.
Brunavarnaáætlanir eru öflugt tæki til að skapa heildstæða yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði í þeim tilgangi að vernda líf og eignir manna.
Brunavarnaáætlunin er aðgengileg á vef Árnessýslu en einnig er hún birt á vef HMS.