Rusladagurinn verður 16. maí 2025
Rusladagur Hrunamanna verður haldinn í 45. skiptið næstkomandi föstudag þann 16. maí 2025.
Verður rusladagurinn tvískiptur eins og undanfarin ár. Hann byrjar á að nemendur Flúðaskóla og Leikskólans Undralands taka virkan þátt í tiltektinni á Flúðum og verður hafist handa kl. 10:15 og nánasta umhverfi skólanna hreinsað. Íbúum Flúða og öðrum er frjáls þátttaka með skólunum. Þá er ætlunin að þakka fyrir góða frammistöðu að ruslatínslu lokinni með því að bjóða upp á grillveislu við skólann um kl. 11:30 og eru allir þátttakendur hjartanlega velkomnir þangað.
Klukkan 16.00 hefst svo gamli góði rusladagurinn undir styrkri stjórn ruslamálaráðherra, Bersveins BreiðfjörðsTheódórssonar "Bessa".
Safnast verður saman við Sæsabar en þar verða ruslapokar og einnota hanskar afhentir þeim sem vilja. Gott er að mæta tímanlega á staðinn.
Skorað er á alla íbúa sveitarfélagsins að fjarlægja allt rusl af lóðum sínum og úr sínu nánasta umhverfi og stuðla þannig að því að fallega sveitarfélagið okkar líti enn betur út og verði okkur öllum til sóma.
Umhverfisnefnd Hrunamannahrepps mælist til að eigendur fyrirtækja og fólk á lögbýlum noti tækifærið og hreinsi til í kringum starfsemi sína og jarðir. Gaman væri að landeigendur tíni rusl með vegum fyrir sínu landi.
Venju samkvæmt verður svo öllum þátttakendum boðið uppá grillaðar pylsur við Sæsabar um kl. 18:00.
Með vinsemd og virðingu,
Bersveinn BreiðsfjörðTheódórsson, (Bessi), ruslamálaráðherra 2025, og Umhverfisnefnd Hrunamannahrepps