AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur og Hrunamannahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga skipulagslýsingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. febrúar 2026, að kynna skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Birkibyggð; Úr frístundabyggð í íbúðabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2503056
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann. 8. október 2025, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Birkibyggð sem er hluti af frístundabyggðinni F9 Kjóabyggð/Álftabyggð. Í breytingunni felst að Birkibyggð verður breytt úr frístundabyggð í íbúðabyggð. Einnig eru settir fram almennir skilmálar og heimildir fyrir íbúðabyggð í dreifbýli.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
- Syðri-Reykir 2 L167163; Frístundasvæði F69, Lækjarbraut; Deiliskipulag – 2601029
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 4. febrúar 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Syðri-Reykja 2 L167163 í Bláskógabyggð. Deiliskipulagið nær yfir um 6 ha lands. Í deiliskipulaginu felst að gert er ráð fyrir 10 frístundalóðum að stærðinni 5.320 til 6.040 m þ.e. Lækjarbraut 1 til 10. Á lóðunum er heimilt að reisa eitt frístundahús og aukahús/gestahús sem getur verið allt að 40 m2 og geymslu allt að 15 m2.
Samkvæmt 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga:
- Reykholtsbrekka og Mosar; Skipting lóðar; Deiliskipulagsbreyting – 2601026
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Reykholtsbrekku og Mosa í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að lóðinni Reykholtsbrekku 1 er skipt í tvær lóðir, Reykholtsbrekku 1 og Reykholtsbrekku 1a. Bætt er inn gangstétt vestan við götuna Mosa, milli Miðholts og Kistuholts. Legu gangstéttar innan lóðar Aratungu er breytt í samræmi við núverandi legu hennar.
- Tungubakki 1 L238041 og 2 L238042; Skilgreining lands; Deiliskipulag – 2509002
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 4. febrúar 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Tungubakka 1 L238041 og Tungubakka 2 L238042 í Bláskógabyggð. Í deiliskipulaginu felst að byggingarreitir eru skilgreindir á hvorri lóð þar sem heimilt er að reisa íbúðarhús að hámarki 300 fm. Auk þess er heimilt að reisa bílskúr og gestahús ásamt skemmu/geymslu. Hámarksbyggingarmagn er 500 fm með íbúðarhúsi og hámarksmænishæð er 5,5m. Aðkoma að lóðunum er frá Einholtsvegi.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. og 3. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 12. febrúar 2026 með athugasemdarfresti til og með 6. mars 2026.
Mál 2., 4. og 5. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 12. febrúar 2026 með athugasemdarfresti til og með 27. mars 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita
Auglýsinguna má sjá á síðu UTU: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/
Hér er hlekkur auglýsinguna sjálfa: https://www.utu.is/auglysingar/skipulagsauglysing-birt-12-februar-2026/