Fara í efni

Sumarnámskeið barna í Hrunamannahreppi 2023

Það er skemmtilegt sumar framundan í Hrunamannahreppi
Það er skemmtilegt sumar framundan í Hrunamannahreppi

Í sumar verður fjöldi námskeiða í boði fyrir börn og ungmenni í Hrunamannahreppi. Vonumst við til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi en auðvitað erum við að þróa þessi námskeið og biðjum við alla um að sýna skilning á því.

Með því að smella hér er hægt að nálgast, á aðgengilegan hátt, upplýsingar um dagskrá sumarsins en einnig er hægt að mynda QR kóðann á myndinni hér til hlíðar og þá tengist viðkomandi beint inn á skráningarsíðu Sportabler.

Úrvalið fyrir börnin og ungmennin er mikið en hægt er að skrá sig á viku leikjanámskeið, í reiðskóla, frisbígolf, unglingahreysti, golf, landart og graffiti, stuttmyndagerð, leiklist og margt, margt fleira.  Endilega kynnið ykkur það sem er í boði og aldursskilmála hvers námskeiðs og búum börnum okkar skemmtilegt og líflegt sumar í góðum hópi.

Skráningar á námskeiðin eru í gegnum Sportabler en þar er hægt að nota frístundastyrk sveitarfélagsins í greiðsluferlinu. Ákveðið verður með hverjum leiðbeinenda hvort námskeið falli niður ef þátttaka verður ekki nægjanleg.

Skráning á námskeiðin fer fram hér: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/hrunamannahreppur

Sveitarstjóri