Tafir á umferð vegna fjárrekstra
30. ágúst
Fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september má búast við umferðartöfum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra
Tafir geta orðið á umferð á Skeiða- og Hrunamannavegi frá Tungufelli að Hrunaréttum, um Kirkjuskarð, fimmtudaginn 10. september frá kl: 10:00-18:00.
Föstudaginn 11. september kl:12:00 og fram eftir degi má búast við töfum á umferð vegna fjárrekstra frá Hrunaréttum.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi.
Réttað verður í Hrunaréttum föstudaginn 11. september og hefjast réttir klukkan 10.00