Fara í efni

Þórey Þula er íþróttamaður ársins 2025.

Þórey Þula á Kjalari frá Hvammi 1.
Þórey Þula á Kjalari frá Hvammi 1.

Þórey Þula Helgadóttir, knapi, er íþróttamaður ársins í Hrunamannahreppi árið 2025.
Viðurkenningin er veitt árlega á 17. júní hátíðahöldum sveitarfélagsins vegna afreka síðastliðins árs.

Það er Lýðheilsu- og æskulýðsnefnd sem stendur að valinu. Í rökstuðningi nefndarinnar kom fram að Þórey Þula varð Íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum ungmenna á heimaræktuðu hryssunni Hröfnu frá Hvammi1. Þær lentu í 4. sæti í fjórgangi og 7-8. sæti í tölti. Frábær árangur á þessari 7 vetra gömlu meri. Í rökstuðningnum segir ennfremur:  „Þórey er búin að sýna það og sanna að hún ætli sér langt í fremstu röð knapa landsins. Það mátti einnig sjá á Landsmótinu í sumar í A-flokki gæðinga þar sem hún átti afbragðs sýningu á Kjalari frá Hvammi 1. Þá var Þórey sýnileg á íþrótta og gæðingamótum ársins og stóð sig vel. Hún er bæði fyrirmynd innan sem utan vallar og íþróttamaður fram í fingurgóma.“

Aðrir sem tilnefndir voru í kjörinu eru þau Arnór Karlson fyrir afrek hans í sundi. Aldís Fönn Benediktsdóttir fyrir afrek í frjálsum íþróttum og Eyþór Orri Árnason, fyrir árangur í körfuknattleik.

Á fundi sveitarstjórnar þann 19. júní sl. óskaði sveitarstjórn Þóreyju Þulu til hamingju með titilinn Íþróttamaður ársins í Hrunamannahreppi. Einnig óskaði sveitarstjórn öðrum verðlaunahöfum til hamingju með glæsilegan árangur á liðnu ári og óskar öllum hópnum velfarnaðar og góðs árangurs í framtíðinni.