Fara í efni

Þúsund íbúa markinu náð í Hrunamannahreppi

Þetta eru algengustu nöfnin í Hrunamannahreppi árið 2026
Þetta eru algengustu nöfnin í Hrunamannahreppi árið 2026

Íbúar Hrunamannahrepps eru nú 1.018, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 36, eða um 3,7% á árinu sem er að líða skv. Þjóðskrá. Þetta er ánægjuleg þróun sem gefur tilefni til bjartsýni og skapar tækifæri til að efla samfélagið enn frekar. Verslun og þjónusta mun styrkjast með fleiri íbúum. Fleiri munu taka þátt í félagsstarfi og fleiri íbúar geta einnig skapað ný tækifæri í atvinnulífinu. Nýir íbúar færa með sér þekkingu, reynslu og hugmyndir sem geta nýst samfélaginu öllu.

Hér búa fjölmargir af erlendum uppruna. Því verðum við að muna að fjölmenning er mikilvægur styrkur. Fólk með ólíkan bakgrunn, tungumál og hefðir auðgar mannlífið og gefur okkur tækifæri til að læra hvert af öðru. Með opnum hug, gagnkvæmri virðingu og góðum samskiptum getum við byggt upp samfélag þar sem allir finna að þeir tilheyra og hafa tækifæri til að taka þátt.

Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að taka vel á móti nýjum íbúum og greiða þeim leið inn í skóla-, atvinnu- og félagslíf. Með áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis og þjónustu eru góðar forsendur fyrir bjarta framtíð í Hrunamannahreppi, sem vonandi mun áfram einkennast af fjölbreyttu mannlífi og samheldnu samfélagi.

Aldís Hafsteinsdóttir
Sveitarstjóri