Tilnefningar óskast: Íþróttamaður ársins í Hrunamannahreppi 2025
30. janúar
Lýðheilsu- og æskulýðsnefnd Hrunamannahrepps auglýsir eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins fyrir árið 2025.
Með hverri tilnefningu skal fylgja rökstuðningur fyrir afrekum viðkomandi íþróttamanns á árinu.
Skilyrði er að sá sem tilnefndur er sé skráður íbúi í Hrunamannahreppi. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi stundi íþrótt sína innan sveitarfélagsins.
Óskað er eftir að tilnefningarnar verði sendar á tölvupóstfangið sigfrid@fludir.is fyrir 01. apríl 2026.