Umhverfishrósið og umhverfisverðlaun 2026 afhent.
Á þjóðhátíðardaginn hefur skapast sú hefð hér í Hrunamannahreppi að Umhverfisnefnd afhendir umhverfisverðlaun fyrir fallegasta garðinn og einnig Umhverfishrósið fyrir framúrskarandi vinnu að umhverfismálum og getur það hvort sem er verið í eigin garði eða með athyglisverðu starfi sem bætir umhverfi Hrunamanna. Halldóra Hjörleifsdóttir fráfarandi formaður Umhverfisnefndar afhenti viðurkenningarnar á hátíðardagskránni þann 17. júní síðastliðinn.
Umhverfisverðlaun Hrunamannahrepps árið 2026 hljóta Lára Hildur Þórsdóttir og Skúli Guðmundsson í Birtingaholti 3.
Lára og Skúli hafa lagt metnað sinn í að skapa afar fallegt, snyrtilegt og heildstætt umhverfi í Birtingaholti.
Garðurinn þeirra er bæði frumlegur og einstaklega vel hirtur og ber skýrt vitni um natni og umhyggju fyrir nærumhverfinu.
Þá hafa þau einnig unnið markvisst að því að fegra bæjarstæðið með því að taka húsakostinn í gegn og mála allar byggingar í samræmdum stíl, sem gefur staðnum fallega og glæsilega heildarmynd. Umhverfi þeirra í Birtingaholti er til fyrirmyndar og setur jákvæðan svip á nærumhverfið.
Umhverfishrós Hrunamannahrepps árið 2026 hljóta Pétur Axel Pétursson og Steinunn G. Kristinsdóttir í Miðhofi 11.
Axel og Steinunn hafa undanfarin ár unnið af alúð að því að fegra garðinn sinn og skapa hlýlegt og fallegt umhverfi í kringum heimilið.
Metnaður þeirra og ræktarsemi skilar sér sérstaklega vel yfir sumartímann þegar garðurinn stendur í fullum blóma.
Blómaskrúðið og snyrtilegt umhverfið setja fallegan svip á hverfið og gleðja bæði íbúa og gesti.
Fyrir hönd Hrunamannahrepps er verðlaunhöfum óskað innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og þökkum við þeim kærlega þeirra framlag til fallegra umhverfis í sveitarfélaginu okkar.
Aldís Hafsteinsdóttir,
sveitarstjóri.