Fara í efni

Uppskeruhátíð Hrunamanna 2026

Gleði matur og menning á Flúðum, laugardaginn 5. september!

 Laugardaginn 5. september
verður mikið um að vera á Flúðum og í nágrenni en þá verður haldin Uppskeruhátíð Hrunamanna.  Hátíðin er árlegur viðburður þar sem uppskeru haustsins er fagnað með skemmtilegri dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Uppskeruhátíð Hrunamanna er einstakt tækifæri til að kynnast svæðinu, menningu þess og fólki.

Við hvetjum íbúa sem og gesti til að taka þátt og njóta samveru, gleði og haustsins hér í Hrunamannahreppi.

📅 Nánari upplýsingar má finna á www.fludir.is og á Facebook-síðum viðburðarins.