Viðbót við dagskrá Uppskeruhátíðar
04. september
Skilaboð frá íbúum að Móadal 5
Við viljum við bjóða ykkur aftur velkomin í opið hús. Við sýnum handverk unnið úr steinum, myndir málaðar á striga og pappír o.fl. Við erum í sumarbústað að Móadal 5, í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi. Frá Flúðum er ekið eftir Langholsvegi að skilti merkt Heiðarbyggð II. Þar er kort af svæðinu.
Opið verður á Uppskeruhátíðardaginn þann 5. sept. milli kl. 13.00 – 17.00.
Vonumst til að sjá sem flesta, verðum með heitt á könnunni.