Fara í efni

Víglundar minnst af sveitarstjórn - skert starfsemi í dag vegna útfarar

Víglundar Þorsteinssonar í Haukholtum sem lést í hörmulegu slysi aðeins 10 ára að aldri þann 28. maí 2025 var minnst á fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps þann 5. júní sl. með mínútu þögn. Í máli oddvita kom fram að þrátt fyrir ungan aldur hafi Víglundur sett mark sitt á samfélagið og skilur hann eftir sig stórt skarð, minning hans mun lifa. Sveitarstjórn og sveitarstjóri senda foreldrum, systkinum, öðrum aðstandendum og vinum innilegar samúðarkveðjur.

Útför Víglundar fer fram frá Skálholtsdómkirkju í dag, þriðjudaginn 10. júní, og hefst athöfnin kl. 13:00.

Ráðhús Hrunamannahrepps og íþrótta- og tækjasalur verða lokuð vegna útfararinnar frá kl. 11:00.  Leikjanámskeiðið í dag fellur niður.
Vinsamlegast takið tillit til þess að skert starfsemi er á öðrum starfsstöðum sveitarfélagsins. 

Vegfarendur milli Flúða og Hrunakirkju milli kl. 14 og 16 í dag eru beðnir um að taka tillit til hægrar umferðar.