Bylgjulestin á Flúðum !
Bylgjulestin kemur á Flúðir – helgina 24. -25. júlí!
Það verður sannkölluð fjölskyldustemning á Flúðum þegar Bylgjulestin mætir á svæðið!
Laugardagurinn frá kl. 12:00 til 16:00
-Lukkuhjól Bylgjunnar með glæsilegum vinningum
-Sýning á iKamper útilegubúnaði
-Talaria rafmótorhjól til sýnis
-Fjölbreytt skemmtun og sprell fyrir alla fjölskylduna á tjaldsvæðinu
Laugardagskvöldið á Grund:
- Kl. 21:00 hefst brekkusöngur með Kalla Hallgríms. Eftir brekkusönginn gengur Gísli í Sniglabandinu til liðs við Kalla og þeir spila öll bestu lögin fram eftir kvöldi.
-Lestarstjórarnir Svali og Bolli sjá til þess að allir farþegar skemmti sér konunglega.
Tilvalið að mæta snemma, njóta dagsins, fá sér góðan mat á Flúðum og taka þátt í skemmtilegri dagskrá.
Hlökkum til að sjá ykkur hér í sólinni !
Nánari upplýsingar: https://www.fludir.is/is/moya/calendar/bylgjulestar-utilega-a-fludum