Snæja og Gróa: Leitin að jólagleðinni. Töfrandi ævintýri fyrir börn í Félagsheimilinu, bókasafni
Snæja og Gróa: Leitin að jólagleðinni
Snæja og Gróa eru álfar sem koma frá ólíkum heimum. Snæja kemur frá Fannborgum þar sem snjóar allan ársins hring og Gróa kemur frá Grænadal þar sem jólin snúast eingöngu um kartöflur. Þær eru orðnar þreyttar á tilbreytingarleysinu yfir jólatímann. Þá rifjast upp fyrir þeim þjóðsagan um Gleðihellinn. Þær ákveða að halda á vit ævintýranna í von um að finna jólagleðina. Ná þær að finna Gleðihellinn fyrir jól? Er hann til yfir höfuð?
Sýningin Snæja og Gróa: Leitin að jólagleðinni er skemmtilegt ævintýri þar sem börnin spila hlutverk í verkinu. Leikritið fjallar um tilfinningar, samskipti, samkennd og fjölbreytileika.
Að baki verksins standa ungar og metnaðarfullar konur en handrit þess er unnið af Söru Isabel Gunnlaugsdóttur leikkonu, Sigríði Höllu Eiriksdóttur leikkonu, og Ingu Steinunni henningsdóttur Sviðshöfund.
Sara Isabel er frá Hrunamannahreppi en hún hefur verið oft hér í sveitinni hjá, ömmu og afa á Varmalæk og stórfjölskyldu sinni hér í hreppnum.
Óskar Snorri Óskarsson sem kemur að verkinu líka, Talsetur verurnar í skóginum. Óskar er einning úr hreppnum og er á þriðja ári í Listaháskólanum.
Dýningartími: 25–30 mínútur
Aldur: Börn á leikskólaaldri og yngri börn á grunnskólaaldri
Staðsetning: Félagsheimilið, bókasafn