Karlakórinn Heimir heldur tónleika á laugardaginn
3. júní kl. 15:00-18:00
Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum
Karlakórinn Heimir, Skagafirði, er með eldri kórum landsins, stofnaður í lok desember árið 1927. Hafa tónleikar þeirra jafnan vakið athygli og verið vel sóttir.
Nú leggja meðlimir Karlakórsins Heimis í Skagafirði land undir fót og stefna suður yfir heiðar.
Tónleikar kórsins verða í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum laugardaginn 3. júní kl. 15:00.