Fara í efni

Syndum - landsátak í sundi 2026

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2026.

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Sund er alhliða líkamsrækt og góð leið til heilsubótar fyrir unga sem aldna.

Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu syndum.is.
Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um sundlaugar landsins.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.