Fara í efni

Uppskeruhátíð Hrunamanna

Uppskeruhátíð Hrunamanna á Flúðum 5. september

Hin árlega Uppskeruhátíð Hrunamanna verður haldin á Flúðum laugardaginn 5. september 2026 kl. 13–16.

Á hátíðinni koma saman sunnlenskir ræktendur, framleiðendur og handverksfólk og kynna fjölbreytt úrval afurða og handgerðra vara. Gestum gefst þar tækifæri til að kynnast því sem framleitt er á svæðinu, hitta fólkið á bak við vörurnar og gera góð kaup beint frá framleiðendum.

Uppskeruhátíðin hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur haustviðburður þar sem matarmenning, handverk og fjölbreytt framleiðsla af Suðurlandi fær að njóta sín.

Hátíðin mun að mestu fara fram í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum en jafnframt munu nokkrir ræktendur og framleiðendur á svæðinu opna dyr sínar fyrir gestum. Þannig gefst fólki tækifæri til að heimsækja framleiðendur, kynnast starfseminni og sjá með eigin augum hvar og hvernig afurðirnar verða til.

Við hlökkum til að taka á móti gestum á Flúðum laugardaginn 5. september milli kl. 13 og 16.

Þeir sunnlensku ræktendur, framleiðendur og handgerðarfólk sem vill kynna og selja vörur sínar er bent á að hafa samband við í gegnum tölvupóstfangið rebekkao86@gmail.com